tobbalicious
Kyntákn hinar örvæntingarfullu konu
3. desember 2007
19. september 2007
30. apríl 2007
13. mars 2007
5. maí 2006
Feiti dvergurinn lætur til sín taka
Var næstum því búinn að sparka í mann í vinnunni í dag. Var búinn að miða út sköflunginn á honum en hætti við þegar ég hugsaði um öll atvinnuviðtölin sem mér yrði ekki boðið í.
Hefur einhver heyrt söguna af stelpunum að dýfa túrtöppum í ab-mjólk til þess að losna við sveppasýkingu? Ég var nefnilega að spá í því hvort þessir nýju ab-drykkir væru þá til þess að strákar ættu auðveldara með að dýfa typpinu ofaní til þess að berjast við sömu sýkingu? Hugsið um það næst þegar þið farið út í búð. Mér finnst það lógískt. Út í búð, kaupa drykkinn, inn í bíl, losa niðrum sig buxurnar og dýfa typpaling ofaní. Kláðinn horfinn. Svo gæti maður jafnvel bara keyrt heim með strákinn í ab-sundi og enginn tekur eftir því. Gaurinn sem brosir svona skemmtilega til þín og veifar á ljósunum gæti verið með typpið á kafi í ab-drykk og þig mundi ekki gruna neitt.
Slúttum þessu með teyknymind:
Flokkar: teyknymindyr
26. apríl 2006
Verslunarstörf
Það gefst mikill tími til þess að láta hugann reika þegar maður vinnur í stórverslun. Tveir hlutir sem runnu ítrekaði í gegnum huga minn í dag eru þessir tveir:
Hjálpsemi. Ég er hjálpsamur maður og reyni allt hvað ég get til þess að aðstoða aðra við að bæta sig og ímynd sína. Líka fyrirtækjum. Sjáið til dæmis skyr.is, ég var búinn að hugsa um að senda þeim tölvupóst og benda þeim á hversu hipp og kúl það nafn væri þegar greinilega einhver hafði orðið á undan mér til þess að benda þeim á það. Ég er líka alltaf að hugsa um önnur nöfn sem gætu bætt stöðu annara fyrirtækja á markaðnum.
Í dag var það Frón. Ég ætti að senda þeim póst eða hringja í markaðsstjórann hjá þeim. Sama gamla slagorðið ár eftir ár. "Kemur við sögu á hverjum degi" Hvaða unglingur á að falla fyrir því? Það eru bara gamlar kerlingar og alzheimersjúklingar sem versla þetta kex inn fyrir jólin og allir vita að einn kexpakki seldur á ári er ekki nóg til þess að halda uppi fyrirtæki. Ég kom þess vegna með nýtt slagorð handa þeim. Því er ekki einungis beint að unglingum heldur einnig þeim sem ekki komust svo vel út úr því góðærisskeiði sem við vorum að upplifa. Frón, ef þú ert að hlusta þá ættirðu að pæla í því hvort þú myndir ekki selja fleiri kexpakka ef slagorðið væri: "Frón! Kemur við sögum á hverjum einasta fokking degi!"
Til allra þeirra kvenna sem hafa neitað að sofa hjá mér til þess að sína að það er ekkert persónulegt hatur af minni hálfu. Líka til þín gleðikonan sem neitaði að taka við íslenskum krónum frá mér á hraðbrautinni á milli Parma og Bologna.
When I think of loosers I think of you
And your flaming red hair and the things that you didn´t do.
I heard you had left no it couldn't be true
I think of loosers I think of you.
God hates you looser where ever you go
although you have left I want you to know
My heart's full of sorrow I wont let it show
I´ll ask you again when it's my time to go.
Svo er það bara teyknymind.
Flokkar: teyknymindyr
24. apríl 2006
Heill þér Forseti!
Finn mig knúinn til þess að útskýra síðustu teyknymind. Hún var byggð á persónulegri reynslu úr miðtúninu. Þannig er nefnilega að dannilíuz litli bróðir minn er kominn með eitthvað sem sumir kalla kærustu. Kannski er þetta leyndarmál og ég má ekkert segja en þið látið þá bara eins og ekkert sé.
Svo við blésum í kvöldmat með stúlkunni til þess að kynnast henni og sýna henni hversu frábær og skítsexý við erum sem fjölskylda. Gönnsó (móðir drengsins. innsk. ritstj.) grillaði og ég sá um óundirbúin skemmtiatriði. Við reyndum að halda ró okkar og tala ekki of hátt til þess að hræða stúlkuna og allt gekk eins og í sögu. Allir stóðu ánægðir upp frá matarborðinu.
Þá kemur að teyknymindynny. Ég komst nefnilega að því að Stúlkan er helmingi meiri karlmaður en Drengurinn. Reykir, er með bílpróf og drekkur kaffi! Eitthvað sem Drengurinn myndi ekki koma nálægt. Ég er eitthvað að spjalla um það um daginn við fyrrverandi tilvonandi eiginkonu mína og hún biður mig um að spyrja Drenginn ákveðinnar spurningar. Sem ég gerði í matarboðinu.
Við erum að njóta matar og víns þegar ég lít á Drenginn og segi við hann: "Drengur! Drengur! Segðu mér eitt. Nú reykir Stúlkan... og nú segir mér Þorgrímur Þráinsson eitt og ég vildi komast að því hvort satt væri. Er þetta eins og að sleikja öskubakka?" Mér fannst þetta sanngjörn spurning. Ég bara hef ekki hugmynd um hvort þetta sé satt og vildi svala forvitni minni. Rauðar kinnar Drengsins og skammir Gönnsóar svöruðu henni þó ekki. Því auglýsi ég hér eftir svari við spurningunni: "Er það að kyssa reykingamann eins og að sleikja öskubakka?"
Væri gaman að vita það.
Flokkar: teyknymindyr
18. apríl 2006
6. apríl 2006
Páskaföndurhorn Tobba!
Jæja krakkar! Það er góður og gamall siður að mála egg á páskunum. Það ætlum við einmitt að gera núna.
Í fyrsta lagi þurfum við: egg, kennaratyggjó, hníf, 3 meikblýanta, 3 gerðir af meiki, stóran meikbursta, ostsneið og örlítið lím.
Svo er það eggið sjálft:
Smá svona meikpúður til að fá lit í kinnarnar:
Teiknum munninn á:
Augasteinarnir og augabrúnirnar settar á:
Augun blá svo megi hún sjá!
Hárinu komið vel fyrir og um að gera að passa upp á skiptinguna í miðju:
Smá páskasnjó til að komast í alvöru stemningu og voilá!

Nú getur fjölskyldan notið páskanna með gleði í hjarta og fallega skreytt páskaegg.
Ein Teyknymind til að fagna páskum líka: Páskapartý!!!
Flokkar: teyknymindyr
30. mars 2006
Jæja. Teyknymind.
Stutt saga um það hvernig hlutir sem maður hélt að stæðu með sér svíkja mann.
Það er mikilvægt að hlusta á þetta með hljóði. Annars missir hún svolítið marks. Ég gef ykkur:

Flokkar: teyknymindyr
29. mars 2006
Mig vantar ástæðu...
Fokk. Nenni ekki neinu. Nægur tími enginn metnaður lætur vita all hressilega af sér núna. Er reyndar að vinna í hreifanlegry teyknymind. Vonandi næ ég að klára hana í dag. Svo vantar mig ástæðu til að halda þessum skrifum áfram.
Cazzo.
Flokkar: teyknymindyr
19. desember 2005
Úrslitin komin. Allir sáttir.
Fimm og níu unnu. Sendi þær bara báðar. Eða allar ef ég verð í nógu góðu skapi. Ykkur vil ég hins vegar óska góðra jóla með þessari teyknymind hér: Jólabarn. (Það verður að hækka í græjunum!!!!!!!!!!)
Ætti að koma ykkur í gírinn fyrir jólin.
Flokkar: teyknymindyr
3. ágúst 2005
Fyrirlitning. Kven Fyrirlitning.
Langt síðan. Ég verð eiginlega að reyna að fyrirlíta þær aðeins. Stelpur. Þær liggja bara svo vel við höggi. Byrjum á teyknymind: Hver er munurinn?
Nei látum ekki svona. Þær eru fínar... í uppvaskið!!! Ha! Ha! Ha! I kill myself.
Það er margt sem stelpur hafa komið með sem hefur gert lífið betra og þægilegra t.d. grindarbotnsæfingar, jafnrétti, halda uppi vörnum fyrir rauðhærða, "já, þú meinar.", snúa körlum til samkyngirndar, séð og heyrt, millistjórnendur... og listinn heldur áfram. Ég get meilað hann ef einhver vill.
Of heitt til að halda áfram. En ég held samt áfram í kvöld í grillveislunni. Þar verða háskólamenntaðar stúlkur (ég veit. ég veit. það er eitthvað rangt við þessa setningu. en þeim tókst að kenna öpum táknmál.) og það er ekkert skemmtilegra en að rakka svoleiðis aðeins niður. Ætla að spyrja þær hvort stelpur taki öðruvísi próf en strákar í háskóla. Tengja saman myndir. Svo er alltaf klassískt að enda kvöldið á setningunni: "Hey! Þið eruð með píku, getið þið þá ekki vaskað upp?"
Víni verður skvett.
Flokkar: teyknymindyr
11. janúar 2005
25. nóvember 2004
Teyknymind!!!!
Verð að fara að róa mig í upphrópunarmerkjunum! En það er ekki ástæða þess að ég kallaði á ykkur hingað. Nei, aldeilis ekki.
Ný teyknymind hefur litið dagsins ljós. Það er betra að horfa á hana með hljóði því annars tapar hún svolitlu af boðskap sínum.
Ég gef ykkur: Mitt fyrsta!
Ef þið vilduð vera svo væn að skilja eftir ykkar álit á henni þá þætti mér vænt um það.
Flokkar: teyknymindyr
5. ágúst 2004
21. júlí 2004
Breiður texti
Það besta við að vinna í búð er að koma heim. Það er ég núna og mættur fyrir framan tölvuna. Ég er reyndar búinn að gleyma svolitlu, þetta með keppnina um daginn. Vinningum hefur verið komið til skila og er Gyða Sól nú stoltur eigandi "Það besta úr 70 mínútum 2" og teyknymind með tobbaliciousi til þess að hengja upp á vegg gerð bara fyrir hana. Af því að tobbalicious elskar að fá send brjóst. Veit ekki hvort ég verð með einhverja keppni aftur, lítil þátttaka í þeirri síðustu.
Annars var ég ekkert nema dofinn í búðinni. Einn af þessum dögum. En ég á þá bara nokkra punkta til þess að nota síðar. Þegar maður fær eitthvað rétt upp í hendurnar á maður að nota það. ANDSKOTINN hafi það! Þannig var nefnilega að þegar ég var nokkurn veginn nýskriðinn inn í gleðina var ég eitthvað að þykjast vinna rétt hjá kassanum. Kemur ekki aftan að mér eldri kona og kallar í átt að mér: "Afsakið! Er enginn á kassa?!" Hvað geri ég? Það eina rétta í stöðunni auðvitað, snéri mér við, leit í áttina að kassanum og svaraði: "Nei. Mér sýnist ekki. Af hverju?" Þarna, sjáið til, þarna var kjörið tækifæri til þess að vera almennilegur og mynda þessi sérstöku tengsl sem eiga að vera á milli viðskiptavinar og búðarstarfsmanns. Kannski næst?
Kannski er það því að kenna hvernig kvöldið í búðinni fór allt af stað hvað ég var dofinn. Í fyrsta lagi þá þurfti ég að raða upp smokkum og það beint fyrir framan kassann. Allir að labba framhjá og ég eldrauður og sá að þau héldu greinilega að ég væri einhver hórkarl sem væri sofandi hjá öllu og öllum. Mér leið eins og mellu. Skömmin var svo mikil. Mér lá við gráti. Stingandi augnaráð viðskiptavina sem dæma mann án þess að vita allan sannleikann. Ég var að raða þessu þarna upp því það eru aðrar skítugar hórur af báðum kynjum sem koma inn í búðina og kaupa þessar skítugu vörur sem mér finnst ekki eiga heima í fjölskylduvænri matvöruverslun. Smokkar og dömubindi. Þegar þær vörur eru komnar út get ég loks borið höfuðið hátt í vinnunni. Það er engin ástæða til þess að hafa þessi kynlífstól fyrir allra augum. Hvað ætli börnin sem komi inn hugsi? Bera þau þess nokkurn tímann bætur að líta þetta augum?
Með þetta nýafstaðið kom svo að atriði sem fékk mig til að hugsa til þeirra gömlu góðu daga þegar ég átti kærustu. Kom stúlka með vinkonu sinni og barni að kassanum. Meðan stúlkan er að ganga frá kaupum sínum stendur vinkonan með barnið við innganginn, þ.e. útganginn í þessu tilviki, og barnið eitthvað hlaupandi um. Þá kallar stúlkan á vinkonu sína: "Nei, passaðu hann. Hann er vís til þess að hlaupa út á götu!" Hversu oft heyrði ég ekki mína fyrrverandi kalla þetta til næsta viðskiptavinar þegar við vorum úti að versla í gamla daga? Brings back memories....
Var ég ekki eitthvað að tala um að dæma fyrirfram? Ég minntist á þetta vegna þess að ég lendi oft í því að fólk er að dæma mig, án þess að það viti sannleikann. Málið er nefnilega að margir sem hitta mig halda að ég sé blindur vegna þess að ég nota svona sterk gleraugu sko. En það er bara ekki rétt. Það rétta í málinu er að ég er alvarlega sjónskertur og væri algjörlega óstarfhæfur ef ekki hefði ég gleraugun, en ég er svooooooooooo langt frá því að vera blindur.
Flokkar: teyknymindyr
14. júlí 2004
Úrslit ráðin
Gyða Sól tók þetta í nefið. Reyndar kannski ekki alveg í nefið því mamma sendi líka inn mynd en mér fannst hún ekki sýna nógu mikið skinn til þess að vinna. Gengur bara betur næst mamma mín. Þú lærir af þessu. Völundur varð svo í 3.-7. sæti.
Þetta þýðir að ég er ekki enn hættur að reykja. Til hvers að hætta því? Það er ógeðslega kúl og svo hef ég ekki séð nein gild rök með því að reykingar séu skaðlegar. Skaðlegar-smaðlegar, helvítis læknar alltaf að ljúga að manni. Getur maður engum treyst lengur?
Skiptir samt engu. Gyða Sól fær vinninginn afhentan á næstu dögum. DVD-diskur af bestu gerð og árituð persónuleg teyknymind. Bara fyrir hana. Ætlast til þess að hún fari upp á vegg. Get ekki gefið upp hvaða disk er um að ræða þar sem hann á að vera sörpræs.
Stelpur allar í kór: "Sörpræs! Oh, en gaman! Það finnst mér nefnilega vanta svo í stráka nú til dags. Örlítið svona sörpræs."
tobbalicious: "Því er ég bara ekki sammála og er með góða sögu því til stuðnings."
"Sögu? Vei!, stelpur elska sögur! Eru einhverjar myndir?"
"Nei. Engar myndir."
"Oh!"
Ení... hú þá er sagan um sörpræsið á þessa leið:
Þannig var mál með vexti að mér var boðið í kökuboð á heimili móður minnar í tilefni þess að hún varð held ég 43 ára, er ekki alveg viss samt. Gæti verið að hún hafi orðið 44 ára. Ég á svo erfitt með að muna ammælisdaga. Vandamál hjá okkur strákunum. Þetta átti að vera svona sörpræsveisla henni til heiðurs en þar sem ég var að skoða verkfæri og hlaða niður klámi af internetinu varð ég örlítið of þremur tímum of seinn. Ég ætlaði nú ekki að vera minni maður en hinir gestirnir og ákvað því að koma með svona eigið spontant sörpræs. Ég bankaði því og beið eftir því að hún kæmi til dyra. Opnar ekki kvikindið með þetta líka ánægjuglott á andlitinu. Þá datt mér það eiginlega í hug. Ætlaði að gera allt annað en þetta glott kveikti á einhverjum púka innan í mér. Svo ég rak hnefann eins fast og ég gat beint í andlitið á henni. Búmm!!! Hún glotti ekki lengur. Horfði á mig með þessum tárvotu augum sem stelpur fá stundum.
"A.. a... a.. af hverju gerðirðu þetta?"
"Bara svona til að segja "Gangi þér vel!""
"Gangi mér vel??? Gangi mér vel með hvað???"
"Útskýra glóðuraugað í vinnunni á morgun."
Segja að strákar geti ekki komið með sörpræs! Puff! Ég blæs á það. Það blundar rómantík í okkur öllum.
Flokkar: teyknymindyr
18. júní 2004
Latur
Nenni ekki að blogga því að ég er latur. Fór ekki út úr húsi á þjóðhátíð. Gef ykkur bara teyknymind.
Ég sé ekkert vandamál þegar sagt er við mann: "Þú veist að ég er bara tvítug." Ég skilgreini sjálfan mig sem 15+.
Verð hjá skjólstæðingnum að horfa á fótbolta í kvöld. Þið verðið því að hringja í mig eftir kl.23 ef þið viljið hitta mig og sofa hjá mér. Eða skjólstæðingnum.
Talaði líka við stelpu á miiðvikudag sem sagði að ég væri alls ekkert fyndinn. Ég sagði við hana að ég teldi sjálfan mig mjööööööööög fyndinn og það væri annað fólk sem teldi mig líka fyndinn. Hún sagði þá: "Segðu eitthvað fyndið!" Svo ég reyndi mitt besta til þess að vera fyndinn. Svo hún sagði: "En þetta er bara ekkert fyndið!"
Ég held ég sé ástfanginn af henni.
Flokkar: teyknymindyr
16. júní 2004
Get ekki hætt!
Svefngalsi kominn í mig og því er hér ein teyknymind og dómur um hana sem ég náði í af "hinu svokallaða alneti".
"Þetta er álíka fyndið og að keyra fullur!," segir Hasselhoff.
Flokkar: teyknymindyr
15. júní 2004
Hamingjusamur
Ný vika byrjuð. Fokk hvað mér er ekki að detta neitt í hug að segja. Kannski það eina góða sem kom út úr helginni er sú staðreynd að ég seldi mínar fyrstu flöskur af kardimommudropum á laugardag. Klukkan hálf níu um morguninn. Strákarnir, eins og ég vil kalla þá, þurftu á einhverju að halda til þess að koma sér á stað. Svo keyptu þeir líka hálfan líter af fanta. Hvernig gat ég gleymt fantanu?
Ég bara gef ykkur aðra teyknymind á meðan mér dettur ekkert í hug. Lítið að gera hjá mér þessa daga utan vinnu.
Er að spá í því hvort líf mitt gæti flokkast sem líf ofuhetju??? Á daginn er ég sendibílstjóri en á kvöldin vinn ég í búð. Spennan er ótrúleg. Hvílíkt líf!!!! Ég svitna!!! Höndla ég pressuna??!!!
Flokkar: teyknymindyr
27. maí 2004
Af hverju gerði ég þetta?
Keypti mér miða til þess að sjá Pixies í London á miðvikudag. Ég sem var á tónleikum í gær.
"tobbalicious, hvað gerðir þú við peningana sem frúin í Hamborg gaf þér?"
"Ha? Hvaða frú? Ég fékk enga peninga. Keypti mér samt miða til London. Dugar það?"
Á svo ekki efni á því en það eru sumir hlutir sem veita manni meiri gleði en annað. Þannig að næsta vika verður bara helvíti skemmtileg. Hitti þar líka fyrrverandi meðleigjanda minn og verða miklir fagnaðarfundir með okkur. Vona ég. Svo allir sem ég þekki og líka fólk sem ég þekki ekki má búast við collect símtölum frá útlöndum í næstu viku. Æ , hvern er ég að reyna að blekkja? Ég á enga vini. Bara vini á internetinu. En þeir, og þá meina ég þær, eru alltaf naktar.
Hef ekki orðið varhluta af því að fólk er að útskrifast. Kemur meira að segja inn í búðina. Heiðrar mig með nærveru sinni. Samt er alltaf hægt að snúa þessu sér í hag. Kom einhver stúlka inn um daginn með húfuna á sér. Þar sem ég er kurteis maður með eindæmum óskaði ég henni til hamingju með árangurinn. Spurði hana svo hvaðan hún hafði útskrifast.
"FG," sagði hún með stolti.
"FG segirðu. Wf hverju ertu þá með hvíta húfu?"
"Það fá allir hvíta húfu sem útskrifast úr menntaskóla."
"Menntaskóla, já, en þið í fjölbraut og svona sérskólum hljótið að þurfa einhvern annan lit, t.d. fjólubláan eða bleikan kannski?"
"Hvað meinarðu? Það er alveg sami hluturinn að útskrifast úr fjölbraut og menntaskóla. Þess vegna fáum við sama lit og menntaskólakrakkarnir."
"Ummm... mamma segir líka að ég sé sætasti strákur í heimi en það þýðir ekki að ég trúi henni eða þá að hún hafi rétt fyrir sér. Við fegrum öll hlutina til þess að finnast lífið meira virði. Í alvörunni, hvaða lit áttu að vera með?"
"Hvítan! Hættu þessu, þú ert bara eitthvað ruglaður!"
"Já, ég veit. Ég fór nefnilega aldrei í menntaskóla sko. Enginn svona þræll bókanna eins og þú. Menntun og hugsjónir! Menntun og hugsjónir! Hljómar bara eins og heil Hitler! Þið eruð kannski með eitthvað svona fasistafélag í þínum "fjölbrautarskóla"? Heil Hitler, menntun og hugsjónir! Drepum verkalýðinn! Nei, skóli var aldrei neitt fyrir mig. Alltof mikil pólitík í þessu fyrir mig. Þoli ekki pólitík. Gengur bara út á það að halda aftur af verkalýðnum. Þessum almenna verkamanni eins og mér, sko."
"Almenna verkamanni! Eins og þér! Fyrirgefðu... en ég held það sé ekkert venjulegt við þig."
"Ekkert að fyrirgefa. Skóli og pólitík maður.... er líka næstum því sama orðið.. sko ef þú tekur út p og l go... nei.. bíddu aðeins.. p og í og t... já og setur inn s.. s-k-ó-l-i. Það er engin tilviljun í því! Ha ha ha ha ha! Fattarðu?!!! Engin pólitík í því.. ha ha ha ha ha ha.. maður lumar nú á þeim mörgum góðum... ha ha ha ha ha!... sko af því "því" og "tilviljun" eru sko ekkert sama orðið og tilviljun miklu lengra heldur en því... kannski væri það hægt ef þú myndir t.d. segja: "það er engin því í tilviljun" en það væri ekkert vit í því... ha ha ha ha ha!.. gerði ég það ekki aftur?.. ha ha ha ha! Hey! Hvert fórstu?"
Búinn með nýja teyknymind og hún er á gráu svæði hvað stolið varðar og ef þú ert undir 18 skaltu ekki skoða hana. Ef, og þá meina ég ef, þú ákveður að skoða hana skaltu ekki væla í mér ef hún misbýður þér. Farðu beint til lögreglunnar og kærðu mig. Karlmenn! verið nú ekki feimnir að kæra mig fyrir það að gera lítið úr hugsjónum og gildum sannra karlmanna. Við erum meira en þessu meitluðu líkamar sem gera konur brjálaðar af girnd. Það er ekki okkur að kenna að við erum fullkomnir hvað varðar líkamsburði og vitsmuni. Við fæddumst bara svona.
Búinn!
Svo er ein svona róleg sem ég kalla talþjálfun.
Flokkar: teyknymindyr
7. maí 2004
Teyknymind: Verðleit
Breki Friðmar og tobbalicious eru komnir með nýja og æsispennandi mynd. Hún ber nafnið: VERÐLEIT.
Hana má nálgast hér.
Flokkar: teyknymindyr









