Yes it is, isn´t it?
Kyntákn hinar örvæntingarfullu konu
Jæja félagar! Júlí á enda sem þýðir sumarlok og innan við mánuður í skóla. Gúlp!!! Deeza hverfur af landi brott og ég einn í kofanum. Held samt alveg örugglega að Deeza eigi nú eftir að gera samning við einhverja skemmtilega og sæta stelpu til þess að leysa hana af. Það er ekkert hægt að treysta á það að ég geti haldið mér á lífi. Kann ekki að elda og hef einhverja þokukennda minningu um eitthvað sem kallast... bíddu.. græ... grænmeti??? Gæti verið, er bara ekki viss. Er þó búinn að koma því þannig fyrir að ég verð að vinna hverja einustu helgi í vetur. Hvílík gleði... Oh, happy happy joy joy!! Hrollur um líkamann... missi sjón... skelf allur... ég.. held.. ég.. sé.. að deyja..... eða ekki? Komist að því á morgun þegar hin æsispennandi sápuópera sem ég kalla, "Kemst tobbalicious fram úr???", heldur áfram... MARGFÖLD SPENNA!!! FLEIRI BRJÓST!!! LJÓTUR MAÐUR!!!!
Maður getur skírt dóttur sína nafninu Gefn Hödd.
Þetta eru snilldarvörur. Eitthvað sem allir ættu að vera með í skápnum heima. You never know when disaster strikes! Ha ha ha ha ha ha múhahahaha!!! Ef nöfnin á þessu eru ekki það snyrtilegasta sem sést hefur í langan tíma. Sé það að markaðsdeildin hefur misst sig yfir þessu, fyndið að hugsa til þess að einhver fékk virkilega pening fyrir það að koma með þessa hugmynd og aðrir fyrir það að koma með nöfn líkt og "Cork-It" og "Fanny Floss". Reyndar tók ég eftir því um daginn að einhver komst inn á síðuna mína í gegnum Google með því að slá inn "rectal prolapse", annar sem sló inn "forhúðin" og sá þriðji sem ákvað að leita undir orðinu "pit licker". What is the world coming to??? Hvað er orðið að því að leita að "Biblía", "Kærleikur" eða kannski "Sundfimleikar"? Eitthvað fallegt sem gefur af sér?
Einhvern veginn held ég að "STÓR BRJÓST" nái ekki alveg að lýsa þessu rétt. Óska eftir því að Orðabók menningarsjóðs finni nýtt nafn á fyrirbæri sem þetta. Halló Mamma!!. Veit að það er á óskalista mínum að fá svona í jólagjöf. Pleeeeeaaassseeee!!!!!!!!!!
Frægðin er það sem ég nærist á.
veit ég lofaði því að blogga á laugardaginn. Bara nennti því ekki. Mér fannst miklu viturlegra að hórast með Völundi niður í bæ og stara beint í sólina þangað til sú litla sjón sem ég hef var algjörlega farinn og andlitið orðið vel rautt. Deeza segir að ég hafi "brunnið" en ég hef bara eitt við hana að segja, þú getur bara sjálf verið "brunnin".
Blogga á morgun. Nú er ég einungis að fagna því að eiga miða á Foo. Miði á Foo. Has a nice ring to it.
Strætó var sendur hingað til að drepa mig
Búinn að pumpa aðeins og fara í ljós til þess að líta ekki út eins og algjört fífl úti á Ítalíu. Er það að takast?
Just another manic monday!
skruppum í opinbera heimsókn til forsætisráðherra og forsætisráðherrafrúarinnar í gær. Svona rétt til að halda góðum pólítískum samböndum á milli ræðismanna og Fríríkisins. Tók með mér bjór til að sýna hollustu mína. Alltaf gaman að hafa góða ástæðu til þess að fá sér bjór. Ekki mikið sem hægt er að segja frá nema hvað Frúin upplýsti okkur ræðismennina um það að á hún á sér ansi skuggalega fortíð þar sem hún hafði að háði og spotti innflytjendareglur Ostaríkisins í vestri og heimtar Gjoggj Döbbja Búss að hún láti stimpla sig til inngöngu. Ég benti henni á það að líta á þetta svipað og hún væri að fara á 22. Þar lætur maður stimpla sig og síðan drekkur maður bjór. Dansar kannski? Eða ekki? Sif ég vildi bara segja þér þetta, þú átt alltaf víst hjá mér atvinnuleyfi. Minn líkami er ekki of góður til þess að láta vinna aðeins á honum. Komdu hérna yfir og sæktu leyfið. Svo geturðu meitlað aðeins til þessa Davíðsstyttu af líkama sem ég er með. Forsætisráðherra er guðvelkomið að horfa á.


Nú gæti farið að draga til tíðinda í tíu ára gömlu máli......
,"So I've been eating my semen for no reason?"
Ég skal gefa ykkur það að ég hef ekki sagt mikið síðustu daga. Það er nú einungis vegna þess að ég get verið algjör hálfviti undir áhrifum áfengis og hef verið með geðveikt samviskubit síðan að ég datt í það fyrir einhverjum dögum. Reyni nú að hrista það af mér og koma einhverju hérna inn. Work you brain! Work!